Gjafabréf

Til að bóka miða sem greiða á með gjafabréfi smellir þú einfaldlega á BÓKA MIÐA og þá birtist valgluggi þar sem hægt er að bóka aðgang sérstaklega fyrir gjafabréf. Þetta á þó ekki við um öll gjafabréf þar sem stundum kann að koma eins og gjafabréfakóði sé útrunninn. Í þeim tilfellum, vinsamlegast sýnið miðann við komu og afhendið gjafabréf.

Þú getur boðið hverjum sem er að njóta gufubaðshefðarinnar og náttúrunnar sem við hjá Laugarvatn Fontana erum stolt að bjóða upp á.

Í augnablikinu er ekki hægt að kaupa gjafabréf í gegnum vefsíðu okkar. Við biðjumst velvirðingar á því.

Hægt að kaupa gjafabréf með því að senda á netfangið sales@fontana.is 


Margir kaupa heimsókn fyrir tvo ýmist með eða án hressingar en einnig er algengt að gefin séu kort sem gilda í lengri tíma. Okkur þykir einstaklega gaman að útbúa gjafabréf, sérsniðið að þínum óskum. Hafðu samband til að fá nánari upplýsingar.

Aðgangur fyrir tvo í Laugarvatn Fontana
Verð: 9000 kr.

Aðgangur fyrir tvo í Laugarvatn Fontana ásamt einum drykk á mann að eigin vali (gos, léttvín eða bjór)
Verð: 12.200 kr.

Aðgangur fyrir tvo í Laugarvatn Fontana ásamt handklæðum og baðsloppum
Verð: 14.000 kr.

Aðgangur fyrir tvo í Laugarvatn Fontana ásamt handklæðum, baðsloppum og einum drykk á mann að eigin vali (allir drykkir nema kampavín)
Verð: 16.700 kr.

 

Gjafabréf í Laugarvatn Fontana er sannarlega hlý og eftirminnileg gjöf til starfshópsins
hvort sem það er jólagjöf eða tækifærisgjöf fyrir vel unnin störf.

Við klæðskerasníðum bréf sem hentar þínum starfshópi best.

Vinsamlegast sendið tölvupóst á sales@fontana.is til að fá frekari upplýsingar og tilboð.